Hefur tapað öllum leikjum sem þjálfari Austurríkis
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Iker Romero (Sina Schuldt / AFP)

Spánski þjálfarinn, Iker Romero er enn að leita að fyrsta sigri sínum sem aðalþjálfari austurríska landsliðsins en hann tók við Austurríki á síðasta ári af Aleš Pajović.

Iker Romero hefur stýrt landsliði Austurríkis í sex leikjum og hafa þeir allir tapast. Austurríki hóf EM karla 2026 í Herning með töpum gegn Þýskalandi og Spáni, en þeir eiga samt möguleika á að komast í milliriðlakeppninnar. Til þess þarf liðið að vinna Serbíu og treysta á að Spánn vinni Þýskaland í lokaleik riðilsins. 

Austurríki hefur tapað fyrir Ungverjalandi, Tékklandi, Frakklandi, Slóveníu, Þýskalandi og Spáni. Framundan er einn mikilvægasti leikur Iker Romero sem þjálfara Austurríkis.  Ef Spánn vinnur Þýskaland þá þarf Austurríki að vinna Serbíu með fjórum mörkum eða meira til að komast áfram og skilja Serbíu og Þýskaland þá eftir með betri innbyrgðismarkatölu.

Leikir með Iker Romero við stjórnvölinn:

1. nóvember 2025 — Vináttulandsleikur: Austurríki gegn Ungverjalandi 27–31

6. janúar 2026 — Vináttulandsleikur (upphitun fyrir EM): Austurríki gegn Tékklandi 29–30

9. janúar 2026 — Vináttulandsleikur (Tournoi de France, París): Frakkland gegn Austurríki 34–29

11. janúar 2026 — Vináttulandsleikur (Tournoi de France, París): Slóvenía gegn Austurríki 36–31

15. janúar 2026 — EHF EM karla 2026 (A-riðill): Þýskaland gegn Austurríki 30–27

17. janúar 2026 — EHF EM karla 2026 (A-riðill): Austurríki gegn Spáni 25–30

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top