Á dögunum var íþróttafólki ÍR sem þótti skara framúr á árinu heiðrað við hátíðlega athöfn í ÍR-heimilinu. Handboltafólk ÍR árið 2025 voru þau Baldur Fritz Bjarnason og Sara Dögg Hjaltadóttir en bæði leika lykilhlutverk í liðum ÍR í Olís-deildum karla og kvenna. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum ÍR en þar segir meðal annars: ,,Baldur og Sara eru vel af þessu komin enda frábærir félagsmenn sem eru miklar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur félagsins. Þau eru bæði að þjálfa í yngri flokkunum og við ÍR-ingar erum stoltir að hafa þau innan okkar raða." Umsögn ÍR um Baldur Fritz: Baldur Fritz Bjarnason var lykilmaður í ungu ÍR-liði sem hélt sér uppi í Olís-deild karla á frækinn hátt. Hann fór hamförum í markaskorun og endaði sem markahæsti leikmaður deildarinnar með 211 mörk í 22 leikjum. Hann hefur áfram verið iðinn við markaskorun á yfirstandandi tímabili og er meðal markahæstu leikmanna deildarinnar. Umsögn ÍR um Söru Dögg: Sara Dögg Hjaltadóttir spilaði stóra rullu í meistaraflokki kvenna sem komst í undanúrslit Íslandsmótinu nú í vor. Hún hefur svo farið á kostum í Olís-deildinni á núverandi leiktíð með ÍR liðinu sem hefur komið mörgum á óvart og situr í 3.sæti deildarinnar. Sara er markahæsti leikmaður Olís-deildar kvenna það sem af er á tímabilinu og hefur skorað 123 mörk í 13 leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.