EM í dag- Einstefna hjá Sviss en naumir sigrar hjá Ítalíu og Norður Makedóníu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Kiril Lazarov (Anne-Christine POUJOULAT / AFP)

Þremur leikjum var að ljúka á Evrópumeistaramótinu í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en leikið var í B, D og F riðlum.

Norður Makedónía og Rúmenía mættust í fyrri leik dagsins í B-riðli og sigraði Norður Makedónía með einu marki 24-23 en staðan í hálfleik var 13-9.

Svartfjallaland og Sviss mættust í fyrri leik dagsins í D-riðli og sigraði Sviss 26-43 en staðan í hálfleik var 16-22.

Pólland og Ítalía mættust í fyrri leik dagsins í F-riðli og sigraði Ítalía með einu marki 28-29 en staðan í hálfleik var 13-15 .

Næstu á dagskrá hjá liðunum eru milliriðlar, en á þessari stundu er óljóst hvaða lið fara áfram á næsta stig keppninnar.

Úrslit dagsins:

Norður Makedónía-Rúmenía 24-23

Svartfjallaland-Sviss 26-43

Pólland-Ítalía 28-29

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top