Úlfur Gunnar Kjartansson (Vefsíða ÍR)
Bjarni Fritzson þjálfari botnliðs ÍR í Olís-deild karla segir í samtali við Handkastið að hann geri ekki ráð fyrir því að línumaðurinn Úlfur Gunnar Kjartansson leiki með liðinu í Olís-deildinni eftir áramót. Handkastið greindi frá því á dögunum að Úlfur Gunnar hafi gert félagaskipti yfir í ÍR frá Haukum en hann hefur ekkert leikið í Olís-deildinni frá því hann lék með Haukum tímabilið 2023/2024. Fyrir það tímabil var hann keyptur yfir til Hauka frá ÍR og gerði þriggja ára samning við Hauka. Spilatími hans hjá Haukum var þó töluvert minni en menn bjuggust við og allra helst hann sjálfur og hætti hann hjá Haukum eftir tímabilið. Samkvæmt heimildum Handkastsins á þeim tíma, reyndu ÍR-ingar að fá Úlf Gunnar til baka fyrir síðasta tímabil en Haukar bentu ÍR-ingum á að greiða þyrfti fyrir leikmanninn. ,,Ég reikna ekki með honum með okkur í Olís-deildinni eftir áramót. Hann er eitthvað að hjálpa ÍR 2 í 2.deildinni og leika sér þar,” sagði Bjarni Fritz í samtali við Handkastið aðspurður hvort Úlfur Gunnar myndi leika með ÍR eftir áramót. ÍR er á botni Olís-deildarinnar með fimm stig eftir 15 umferðir en fyrsti leikur liðsins eftir áramót verður á heimavelli gegn KA á morgun þegar Olís-deildin fer aftur af stað.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.