
Danmörk (Bo Amstrup /AFP)
Danska landsliðið mun ekki æfa í dag, daginn fyrir mikilvægan leik liðsins gegn Frökkum í fyrsta leik þjóðanna í milliriðli Evrópumótsins. Nicolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari danska landsliðsins greindi frá því í samtali við TV 2 að liðið myndi ekki æfa í dag. Ástæðan er sú að danska liðið þarf að rýna betur í tap liðsins gegn Portúgal í gær sem og leiki ríkjandi Evrópumeistara Frakka. Danir töpuðu óvænt gegn Portúgal í lokaleik riðilsins í gærkvöldi á heimavelli gegn Herning, 31-29 og eru nú með bakið upp við vegg fyrir leiki sína í milliriðlunum þar sem liðið má ekki við neinum mistökum. Samkvæmt danska handknattleikssambandinu hefur fyrirhugaðri æfingu í dag verið aflýst í kjölfar vonbrigða gærdagsins. Upplýsingarnar hafa verið sendar dönskum fjölmiðlum og er þar bent á að Nikolaj Jacobsen hafi talið það vera forgangsatriði fyrir liðið að undirbúa sig frekar á videofundi frekar en í æfingasal. Keppni í milliriðlum Evrópumótsins hefjast á morgun með þremur leikjum. Þýskaland og Portúgal mætast klukkan 14:30, Spánn og Noregur mætast 17:00 og loks klukkan 19:30 mætast Frakkland og Danmörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.