Slóveni dæmdur í tveggja leikja bann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Victor Iturizza (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Slóvenía verður án Matic Suholežnik í fyrstu tveimur leikjum sínum í milliriðli Evrópumótsins en hann hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir brot sitt í sigri gegn Færeyjum í gærkvöldi.

Slóvenía er í milliriðli með Íslandi en ljóst er að Slóvenar verða án Suholežnik gegn sigurvegurunum í E-riðli en það skýrist í kvöld hvort það verði Svíar eða Króatar. Þá missir hann einnig af leiknum gegn Ungverjalandi næstkomandi sunnudag. 

Suholežnik fékk rautt spjald um miðbik fyrri hálfleiks.

Þá er ljóst að varnar- og línumaðurinn Victor Iturizza leikmaður Portúgals verður í leikbanni í leiknum gegn Þjóðverjum á morgun í fyrsta leik þjóðanna í hinum milliriðlinum.

Iturizza sem átti frábæra frammistöðu í vörn Portúgals í sigri liðsins gegn Dönum í gærkvöldi fékk rautt spjald fimm mínútum fyrir leikslok fyrir brot sitt á Mathias Gidsel og hefur aganefndin dæmt hann í eins leiks bann.

Um er að ræða mikið áfall fyrir Portúgali sem mæta til leiks í milliriðilinn með tvö stig eftir sigurinn á Dönum í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top