Viktor Gísli (Sævar Jónasson)
Evrópska handknattleikssambandið EHF birti skemmtilega tölfræði yfir markverði það sem af er á Evrópumótinu og þar er Viktor Gísli Hallgrímsson í fjórða sæti á listanum. Viktor Gísli Hallgrímsson hefur varið 31 bolta í 97 skotum fengin á sig og það gefur Viktori Gísla 31.96% markvörslu sem verður að teljast mjög gott. Normaðurinn Torbjørn Bergerud er á toppnum á listanum en hann hefur varið 34 bolta í 98 skotum og er með 34,69% markvörslu. Í öðru sæti er Pauli Jacobsen frá Færeyjum en hann er 33 varða bolta í 108 skotum. Ungverjinn Kristóf Palasics er svo í þriðja sæti með 32 varin skot í 91 skotum. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.