Ómar Ingi Magnússon (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)
Ómar Ingi Magnússon er orðinn markahæsti leikmaður Íslands en hann og Óðinn Þór Ríkharðsson voru markahæstir í íslenska landsliðinu í eins marks tapi gegn Króatíu í Malmö í gær. Nú er fyrsta umferðin í milliriðlunum lokið og er Francisco Costa leikmaður Portúgals markahæsti leikmaður mótsins með 39 mörk eftir fjóra leiki. Daninn, Mathias Gidsel kemur næstur með 34 mörk en Slóveninn, Domen Makuc kemur næst með 33. Athygli vekur að tveir danskir leikmenn eru meðal fjögurra markahæstu leikmanna mótsins því Simon Pytlick er í 4.sæti með 31 mark skorað á mótinu. Samtals hafa því Mathias Gidsel og Simon Pytlick skorað 65 mörk í fjórum leikjum Danmerkur á mótinu. Ómar Ingi Magnússon hefur skorað 23 mörk á mótinu en hann er 16. markahæsti leikmaður Evrópumótsins. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 markahæstu leikmenn EM.Sæti Nafn Land Leikir Mörk 1 Francisco Costa Portúgal 4 39 2 Mathias Gidsel Danmörk 4 34 3 Domen Makuc Slóvenía 4 33 4 Simon Pytlick Danmörk 4 31 5 Giorgi Tskhovrebadze Georgía 3 29 6 August Pedersen Noregur 4 28 7 Filip Kuzmanovski Norður-Makedónía 3 28 8 Elias på Skipagøtu Færeyjar 3 27 9 Lenny Rubin Sviss 4 26 10 Jonáš Josef Tékkland 3 25 11 Rutger ten Velde Holland 3 24 12 Martim Costa Portugal 4 24 13 Renārs Uščins Þýskaland 4 24 14 Óli Mittún Færeyjar 3 23 16 Ómar Ingi Magnússon Ísland 4 23 17 Felix Claar Svíþjóð 4 22 18 Zvonimir Srna Króatía 4 22 19 Nikola Roganović Svíþjóð 4 21 20 Ihor Turchenko Úkraína 3 21

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.