Lucas Moscariello ((Photo by Aris MESSINIS / AFP)
Mið- og Suður Ameríku keppninni í handbolta lauk í nótt en mótið fór fram í Paragvæ að þessu sinni. Argentína tryggðu sér titilinn með sigri á Brasilíu í úrslitaleik keppninnar 26-25. Argentína voru með frumkvæðið megnið af leiknum og leiddu í hálfleik 14-12. Rudolp Hackbarth leikmaður Brasilíu var markahæstur í leiknum með 7 mörk en hann leikur með Eurofarm Pelister í Norður Makedóníu. Hjá Argentínu var Nicholas Bono markahæstur með 6 mörk. Bæði liðin hafa því tryggt sér farseðilinn á HM 2027 en auka þeirra eru Chile og Úrugvæ búin að tryggja sér þáttöku á mótinu eftir að Chile vann Úrugvæ 36-29 í leik um þriðja sætið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.