Andri Erlingsson (Sævar Jónasson)
Í síðustu viku tilkynnti toppliðið í sænsku úrvalsdeildinni, Kristianstad að félagið hafi samið við tvo íslenska leikmenn í Olís-deild karla. Þá Andra Erlingsson leikmann ÍBV og Baldur Fritz Bjarnason leikmann ÍR. Ganga þeir báðir í raðir Kristianstad næsta sumar en Andri gerði þriggja ára samning við sænska félagið á meðan Baldur Fritz gerði tveggja ára samning. Handkastið heyrði í Andra og spurði hann aðeins út í ákvörðun hans að semja við sænska félagið fyrir næsta tímabil. ,,Þetta byrjaði í byrjun desember þegar umboðsmaðurinn minn hafði samband og lét mig vita að því að Kristianstad væri mjög áhugasamir,” sagði Andri sem sagði að hlutirnir hafi þá farið að rúlla og þetta hafi síðan endað á því að hann hafi skrifað undir samninginn við félagið um miðjan janúar. ,,Það voru önnur félög sem sýndu mér áhuga en mér fannst Kristianstad mest spennandi af því sem var í boði. Ég valdi Kristianstad því ég held að það sé best fyrir mig til að þróast sem handbolta maður. Þetta er mjög stórt félag og með spennandi plön þannig það var frekar létt fyrir mig að velja. Einnig hjálpaði umboðsmaðurinn minn mér mjög mikið í þessu.” ,,Ég fór á nokkra fundi með þjálfaranum og framkvæmdarstjóra félagsins og þeir voru mjög ákveðnir í að fá mig. Framtíðarplönin hjá þeim eru mjög spennandi og þeir voru líka mjög skýrir með hlutverkið mitt í liðinu.” En var Andri staðráðinn í því að fara út eftir þetta tímabil eða kom þetta óvænt upp? ,,Bæði og. Ég var alveg opinn fyrir því að fara út eftir tímabilið en upprunalega planið var að taka eitt tímabil í viðbót heima.” ,,Tilfinningin er hinsvegar mjög góð og ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni. Auðvitað er þetta mikil breyting, búa í öðru landi og allt það en kærastan mín kemur með mér sem mun hjálpa mér mjög mikið. Þannig ég er bara mjög spenntur,” sagði Andri Erlingsson leikmaður ÍBV og verðandi leikmaður Kristianstad í viðtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.