Kominn heim eftir stutta dvöl í Færeyjum
Egill Bjarni Friðjónsson)

Leikstjórnandinn, Benedikt Emil Aðalsteinsson er kominn aftur heim til Íslands eftir hálfs árs dvöl hjá færeyska liðinu KÍF. Þjálfari KÍF er Árbæingurinn, Viktor Lekve en hann tók við liðinu síðasta sumar.

Benedikt Emil gekk í raðir félagsins í lok september en er nú kominn heim og hefur leikið sinn síðasta leik fyrir KÍF. Þetta staðfesti Viktor Lekve í samtali við Handkastið.

Segir Viktor Lekve að persónulegar ástæður Benedikts liggi á bakið ákvörðunar. Benedikt Emil hefur gert félagaskipti aftur yfir í Víking og verður því löglegur með liðinu í baráttunni eftir áramót.

Benedikt Emil skoraði 53 mörk fyrir KÍF í færeysku úrvalsdeildinni en liðið er í 6.sæti af sjö liðum í deildinni með átta stig eftir 12 leiki

Benedikt Emil er fæddur árið 2005, uppalinn hjá FH og var í sigursælum yngri flokkum hjá félaginu. Fyrir rúmum þremur árum skipti hann svo yfir í Víking. Tímabilið 2023-2024 endaði hann markahæstur í Grill 66 deildinni með Víking U með samtals 118 mörk.

Víkingur mætir ÍH á föstudaginn næstkomandi en sjö umferðir eru eftir af Grill66-deild karla þar sem Víkingar eru á toppi deildarinnar í harðri baráttu við Gróttu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top