Pétur Árni Hauksson (Sævar Jónasson)
Stjarnan hefur orðið fyrir miklu áfalli fyrir seinni hluta Olís-deildarinnar því Pétur Árni Hauksson, örvhent skytta og mikilvægur varnarmaður liðsins verður frá keppni það sem eftir er af tímabilinu og meira til. Pétur Árni varð fyrir því áfalli að slíta krossband í æfingarleik með Stjörnunni í janúar gegn FH. Þetta staðfesti Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Handkastið. Gera má ráð fyrir því að Pétur verði frá keppni í 10-12 mánuði en þetta er mikið áfall bæði fyrir hann sjálfan og Stjörnuliðið sem situr í 8.sæti Olís-deildarinnar með jafn mörg stig og HK sem er í 9.sætinu og er liðið því í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Pétur Árni sem er uppalinn í Stjörnunni rennur út af samningi við Stjörnuna eftir tímabilið. Miklar breytingar hafa orðið á Stjörnuliðinu frá því fyrir áramót. Ólafur Brim Stefánsson er genginn í raðir Junior Fasano og þá rifti félagið samningi sínum við Ungverjann Rea Barnabás fyrir áramót. Þá hafa orðið breytingar á þjálfarateymi Stjörnunnar en Sverrir Eyjólfsson er nýr aðstoðarþjálfari liðsins og tók við starfinu af Arnari Daða Arnarssyni sem var sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfara Stjörnunnar. Þá hefur Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar verið í öðrum verkefnum í janúar í leikgreiningarhlutverki fyrir íslenska karla landsliðið og hefur Sverrir Eyjólfsson því stýrt liðinu í janúar. Stjarnan fékk til sín Aron Val Gunnlaugsson á láni frá Aftureldingu í janúar. Olís-deild karla fer af stað eftir EM pásu næstkomandi miðvikudag en Stjarnan fær nýliða Þórs í heimsókn á fimmtudaginn. Stjarnan mætir síðan hinum nýliðunum í Selfoss strax í kjölfarið og það er því mikið undir hjá Stjörnuliðinu í næstu leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.