Fer yngri Dujshebaev bróðirinn líka til Þýskalands?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Daniel Dujsebaev (ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP)

Handkastið greindi frá því á dögunum að allt benti til þess að yngri Dujshebaev bróðirinn, Daniel Dujshebaev væri á leið til Króatíu og myndi leika með RK Zagreb á komandi tímabilum. Þá var rúmenska liðið, Dynamo Bucuresti einnig nefnt til sögunnar.

Nú hefur Melsungen hinsvegar blandað sér í baráttuna um spænska landsliðsmanninn sem var í eldlínunni með Spánverjum á Evrópumótinu og leikið með Kielce í Póllandi síðustu tímabil.

Það er RThandball sem greinir frá að pólskir fjölmiðlar séu sannfærðir um að báðir bræðurnir fari til Þýskalands næsta sumar þegar samningar þeirra renna út við Kielce.

,,Pólskir fjölmiðlar hafa sagt frá því að yngri bróðirinn muni einnig enda í þýsku úrvalsdeildinni. Nýja lið hans verður MT Melsungen, sem er eitt af liðunum sem hafa barist um titilinn síðustu tímabil," segir RThandball í færslu sinni og bendir á að þjálfari Melsungen sé Spánverjinn Roberto Garcia Parrondo.

Eldri bróðirinn, Alex Dujshebaev er sagður vera á leið til Guðjóns Vals Sigurðssonar og félaga í Gummersbach.

Talið er að félagaskipti beggja bræðranna verði tilkynnt þegar Evrópumótinu lýkur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top