Ísland í undanúrslit eftir frábæran sigur!
Johan Nilsson/TT /AFP

Íslenska landsliðið er komið í undanúrslit eftir frábæran sigur á Slóvenum, lokatölur 39-31 en það var í raun aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda eftir frábærar upphafsmínútur í síðari hálfleiknum

Það var allt annað að sjá til íslenska liðsins í byrjun leiks í dag en í gær gegn Sviss en liðið var augljóslega betur stillt og ákveðið í að klára verkefni dagsins sem myndi koma liðinu í undanúrslit.

Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn en Vujovic í marki Slóvena var að verja vel ásamt því að við gerðum okkur seka um að fá nokkrar klaufalegar brottvísanir þannig liðinu tókst ekki að slíta sig almennilega frá Slóvenum, staðan í hálfleik 16-18.

Það mátti sjá á leik Íslands í byrjun seinni hálfleiks að Snorri Steinn hafi farið vel yfir málin með lærisveinum sínum því Íslenska liðið var vel með á nótunum og mátti sjá mikla einbeitingu og gír í liðinu.

Ísland komst í fimm marka forystu þegar um tuttugu mínútur voru eftir og þá leist Zorman þjálfara Slóvena ekkert á blikurnar og tók leikhlé. Það gerði hins vegar lítið fyrir Slóvena því íslenska liðið var ákveðið í því að klára þennan leik og þeir gáfu bara meira í og komust meðal annars í átta marka forystu þegar minna en tíu mínútur voru eftir.

Það var einfaldlega of mikill munur og Slóvenar komust ekki nálægt því að jafna leikinn og frábær íslenskur sigur í höfn! Lokatölur 39-31 og Ísland er komið í undanúrslit sem fara fram í Herning á föstudag! Stemning mögnuð í Malmö Arena og gríðarlega vel gert hjá Íslandi!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top