HK með Grikkja á reynslu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Orfeus - Víðir í Garði (Víðir)

Grikkinn, Orfeus Andreou leikmaður Víðis í 2.deild karla er þessa dagana á reynslu hjá HK og lék í síðustu viku æfingarleik með HK gegn Stjörnunni. Félagaskiptaglugginn lokaði á Íslandi um mánaðarmótin en ekki liggur fyrir hvort HK hafi samið við Orfeus.

Orfeus Andreou er örvhentur leikmaður sem leikið hefur með Víði í 2.deild karla undanfarin ár og verið markahæsti leikmaður liðsins frá stofnun þess. Á þessu tímabili hefur hann skoraði átta mörk að meðaltali í leik með Víði eða 56 mörk alls í sjö leikjum.

Er hann næst markahæsti leikmaður 2.deildarinnar á eftir Matthíasi Inga Magnússyni leikmanni ÍR sem leikur með ÍR 2 í 2.deildinni en Matthías hefur skorað 66 mörk í sjö leikjum.

HK-ingar hafa einungis verið með eina örvhentu skyttu í Olís-deildinni fyrir áramót en Kári Tómas Hauksson yfirgaf HK og elti ástina til Þýskalands og leikur í þýsku neðri deildinni en kærasta hans, Elín Rósa Magnúsdóttir gekk í raðir Blomberg-Lippe frá Val í sumar.

HK er í 9.sæti Olís-deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og Stjarnan sem er í 8.sæti deildarinnar. Olís-deild karla fer af stað í vikunni eftir langa og góða jóla og EM-pásu. 

Það verður fróðlegt að sjá hvort Grikkinn, Orfeus Andreou  gangi í raðir HK eftir áramót og leiki með liðinu það sem eftir er af tímabilinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top