Þorsteinn Leó Gunnarsson (Sævar Jónasson)
Athygli hefur vakið að Þorsteinn Leó Gunnarsson hefur verið í leikmannahópi Íslands í öllum fjórum leikjum Íslands í milliriðli Evrópumótsins án þess þó að hafa fengið tækifæri - fyrir utan þrjú fríköst sem hann hefur verið settur inn og átt að skjóta á markið í kjölfarið. Handkastið heyrði í Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands í aðdraganda undanúrslitaleiksins sem framundan er í kvöld í Herning er Ísland mætir Danmörku og spurði Snorra út í stöðuna á Þorsteini Leó sem er að koma til baka eftir erfið nárameiðsli og var tvísýnt lengi vel hvort hann yrði leikfær á Evrópumótinu. Hver er í raun og veru staða Þorsteins Leós og er hann leikfær? ,,Staðan á honum er fín. Auðvitað hefur hann lítið sem ekkert æft þar sem æfingarnar verða alltaf rólegri og rólegri þegar líður á mótið og hann hefur ekki spilað leiki í töluverðan tíma. Við lítum hinsvegar á það sem svo að hann sé klár. Fyrirfram hafði ég ekki gert ráð fyrir honum í stóru hlutverki í leiknum gegn Króatíu og síðan taka við þrír leikir þar sem sóknarleikurinn hefur verið mjög góður og ég hef ekki fundist vera einhver skortur á okkar sóknarleik. Menn hafa bara verið að gera hlutina þokkalega,” sagði Snorri Steinn og hélt áfram: ,,Síðan er það annað, að þegar við byrjum undirbúninginn fyrir mótið þá erum við með 3-4 leikmenn sem eru fullir heilsu og eru inn í hlutunum og eru því eðlilega meira inn í þeim hlutum sem við erum að gera. Það er kannski ein af ástæðunum afhverju Þorsteinn Leó hefur ekki komið meira við sögu. Ég vildi hafa hann í hóp ef ég myndi upplifa það að við værum ekki að opna varnir andstæðinganna og værum í erfiðleikum með að komast í færi en þær aðstæður hafa bara ekki komið upp að mínu mati.” Þannig að Þorsteinn Leó getur þess vegna spilað í leiknum í kvöld ef Ísland lendir í vandræðum sóknarlega? ,,Ef mér dettur það í hug að setja hann inn þá lít ég á það sem svo að hann sé leikfær og yrði klár í það.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.