Dagur Árni Heimisson (Sævar Jónasson)
Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals í Olís-deild karla glímir við smávægileg meiðsli. Óvíst er hvort hann verði með Val í fyrsta leik ársins þegar toppslagur í Olís-deild karla fer fram næstkomandi fimmtudag þegar Valur fær Hauka í heimsókn. Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals staðfesti í samtali við Handkastið að Dagur Árni væri að glíma við meiðsli og sagði það óljóst á þessi stundu hvort hann yrði leikfær fyrir stórleikinn gegn Haukum á fimmtudaginn. ,,Það skýrist vonandi allt eftir helgi," sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari ársins 2025 í samtali við Handkastið. Olís-deild karla fer aftur af stað eftir EM pásuna á miðvikudaginn þegar þrír leikir fara fram. Tveir leikir hefjast klukkan 18:00 á miðvikudag og einn klukkan 18:30. Á fimmtudaginn lýkur síðan 16.umferðin með þremur leikjum. Stjarnan tekur á móti Þór, Valur fær Hauka í heimsókn og Fram og Afturelding mætast í Úlfarsárdalnum klukkan 20:15.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.