Palicka hefur leikið sinn síðasta landsleik á ferlinum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andreas Palicka (Beate Oma Dahle / NTB / AFP)

Andreas Palicka hefur spilað sínar síðustu mínútur með sænska landsliðinu. Hann tilkynnti þetta í viðtali eftir tap Svíþjóðar gegn Portúgal í leik um 5.sætið á Evrópumótinu.

Andreas Palicka gengur í raðir Fuchse Berlín í sumar frá Kolstad en hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir sænska landsliðið árið 2007. Hann er fæddur í júlí árið 1986 og verður því fertugur í sumar.

Palicka vann til fjögurra verðlauna með sænska landsliðinu á stórmótum. Hann vann til gullverðlauna á EM 2022, silfurverðlauna á á EM 2018 og HM 2021 og bronsverðlauna á EM 2024.

Þá var hann hluti af U-21 árs landsliði Svía sem vann HM U21 árið 2007. Hann lék tæplega 180 landsleiki á ferlinum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top