Gidsel er fjórum mörkum frá markameti Sagosen
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mathias Gidsel (BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Mathias Gidsel er fjórum mörkum frá því að jafna markamet Sander Sagosen á Evrópumótinu. Sander Sagosen skoraði 65 mörk á Evrópumótinu 2020 en einungis Kiril Lazarov hafði þá skorað yfir 60 mörk á einu og sama Evrópumótinu.

Mathias Gidsel verður í eldlínunni með Dönum í úrslitaleik Evrópumótsins gegn Þjóðverjum á sunnudagskvöldið. Skori Gidsel fimm mörk eða meira slær hann markamet Sagosen.

Bæði Francisco Costa og Mathias Gidsel hafa skorað 61 mark á Evrópumótinu en F. Costa leikmaður Portúgals hefur lokið keppni eftir sigur á Svíþjóð í leik um 5.sætið á mótinu í gær.

Ómar Ingi Magnússon skoraði 59 mörk á Evrópumótinu 2022 og 20 árum áður eða á EM 2002 skoraði Ólafur Indriði Stefánsson 58 mörk.

Hér að neðan er hægt að sjá lista yfir þá leikmenn sem hafa skorað flest mörk á einu og sama Evrópumótinu.

65 mörk - Sander Sagosen (2020)

61 mark - Mathias Gidsel (2026 - 1 leikur eftir)

61 mark - F. Costa (2026)

61 mark - Kiril Lazarov (2012)

59 - Ómar Ingi Magnússon (2022)

58 - Ólafur Stefánsson (2002)

57 - Lövgren (2002)

56 - Simon Pytlick (2026 - 1 leikur eftir)

56 - Zdrahala (2018)

54 - M. Costa (2024)

54 - Mathias Gidsel (2024)

53 - Filip Jicha (2010)

52 - Kostetskiy (2002)

51 - Rutenka (2006)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top