
Andreas Wolff (Jonathan Nackstrand / AFP)
Andreas Wolff markvörður Þjóðverja var valinn besti leikmaður vallarins í sigri Þýskalands gegn Króatíu í undanúrslitum Evrópumótsins í gær. Þjóðverjar unnu Króatíu 31-28 en Wolff var með 14 varin skot í leiknum, eða 33% markvörslu. Eftir leikinn mættust síðan Danmörk og Ísland þar sem Danmörk hafði betur með sama markatölu, 31-28. Andreas Wolff var í viðtali við Viaplay eftir sigurinn á Króatíu þar sem hann var spurður út í úrslitaleikinn. Þar talaði Wolff einungis um danska liðið og hversu gott það væri og hversu erfiður leikur væri framundan að mæta einu besta liði í heimi. Fréttakonan sem tók viðtalið við Wolff stoppaði hann af í miðju svari og benti honum á að hann minntist einungis á Danmörku án þess þó að Danmörk væri búið að tryggja sér sæti í úrslitum og ætti eftir að spila við Ísland í undanúrslitunum. Það hafði lítil áhrif á Wolff sem sagði að Danmörk væri að hans mati besta lið í heimi og ef hann ætti að setja pening á hvort liðið myndi vinna, myndi hann setja peninginn á Danmörku. Í kjölfarið var skipt á sérfræðinga Viaplay sem gátu ekki annað en hlegið af Wolff fyrir það að tala einungis um það að hann væri að fara mæta Danmörku í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Að lokum hafði Wolff hinsvegar rétt fyrir sér en það var nokkuð ljóst að þýski markvörðurinn hafði litla sem enga trú á sigri Íslands gegn Danmörku. Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið á morgun klukkan 14:15 en klukkan 17:00 mætast Danmörk og Þýsklaland í leik um Evrópumeistaratitilinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.