Danir geta náð sögulegum árangri í dag
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mathias Gidsel - Simon Pytlick (Bo Amstrup / Ritzau Scanpix / AFP)

Danmörk og Þýskaland mætast í úrslitaleik Evrópumótsins klukkan 17:00 í Boxen höllinni í Herning í Danmörku. Klukkan 14:15 í dag mætast Ísland og Króatía í leiknum um bronsið í sömu höll.

Danir eru ríkjandi heims- og Ólympíumeistarar og geta með sigri í dag gegn Þjóðverjum verið handhafar allra stærstu titla sem í boði eru í alþjóðlegum handbolta í dag.

Danmörk yrði þá önnur þjóðin í sögu handbolta karla á eftir Frakklandi til að vera ríkjandi heims-, Ólympíu- og Evrópumeistarar. Frakkar voru ríkjandi heims-, Ólympíu- og Evrópumeistarar á árunum 2008-2010 en þeir urðu Ólympíumeistarar í Peking 2008 eftir sigur á Íslandi í úrslitaleik, loks unnu þeir heimsmeistaramótið 2009 og urðu síðan Evrópumeistarar 2010.

Danir urðu síðast Evrópumeistarar á EM 2012 og það er því mikið í húfi fyrir Dani á heimavelli í Herning í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top