Orri Freyr Þorkelsson (Jonathan Nackstrand / AFP)
Fulltrúar HSÍ eru allt annað en sáttir með skipulag EHF á úrslitahelgi Evrópumótsins sem nú stendur yfir í Herning í Danmörku. Íslenska landsliðið tapaði gegn Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins í gærkvöldi en leikurinn hófst klukkan 20:30 á staðartíma. Íslensku landsliðsmennirnir voru mættir upp á liðshótel sitt rétt fyrir miðnætti og í kjölfarið tók við endurheimt leikmanna með sjúkraþjálfurum landsliðsins. Leikmenn landsliðsins áttu síðan að mæta á fjölmiðlahitting klukkan 10:30 á staðartíma í morgun. Seint í gærkvöldi, eða eftir miðnætti sendi HSÍ tilkynningu á íslenska fjölmiðla að þeim fjölmiðlahittingi yrði frestað af ósk HSÍ og yrði tímasetning auglýst síðar. Klukkan 01:50 í nótt á staðartíma sendi HSÍ hinsvegar aðra tilkynningu á íslensku fjölmiðlamennina sem eru í Herning um að EHF hafi ekki orðið af beiðni Íslands. ,,Leikmenn landsliðsins eru og verða í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum næstu tvo tímana líklega. Þrátt fyrir það er það ósk EHF að Ísland mæti í "media call" klukkan 10:30 á morgun," segir meðal annars í skilaboðum frá HSÍ í nótt. Í morgunsárið var síðan sendur annar póstur þar sem sagt var að íslenski hópurinn mæti í Boxen höllina. EHF hefur fengið mikla gagnrýni yfir skipulagsmálum í aðdraganda úrslitahelgarinnar en Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu lét vel í sér heyra á blaðamannafundi í fyrradag í aðdraganda leiks Króatíu og Þýskalands í undanúrslitum keppninnar. EHF gaf út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem því var lofað að lið myndu ekki aftur spila tvo leiki á tveimur dögum, líkt og raunin var hjá Íslandi og Króötum auk annarra liða í milliriðli 2 í Malmö í vikunni. Þess ber þó að hafa í huga að fjölmiðlahittingar landsliðanna í úrslitahelginni eru ekki ákveðnir með skömmum fyrirvara og lá það ljóst fyrir, fyrir löngu hvenær íslenska landsliðið ætti að mæta í fjölmiðlahittinginn í morgun. Þeim var ekki tilkynnt það í gærkvöldi. Hvort forsvarsmenn HSÍ hefðu ekki betur átt að gera athugasemd við tímasetninguna með töluvert meiri og betri fyrirvara er önnur umræða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.