Ný lína lögð hjá dómurunum sem þarfnast nánari kynningar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Guðjón Sigurðsson (Kristinn Steinn Traustason)

Guðjón L. Sigurðsson eftirlitsdómari og fyrrum formaður dómaranefndar og alþjóða handboltadómari segist skilja gagnrýni íslensku landsliðsmannanna á dómgæsluna í tapi Íslands gegn Danmerkur í undanúrslitum Evrópumótsins í gærkvöldi.

Íslensku landsliðsmennirnir létu óánægju sína með dómgæsluna í ljós í viðtölum við fjölmiðla eftir þriggja marka tap gegn Danmörku 31-28 í gærkvöldi.

Viktor Gísli Hallgrímsson sagði til að mynda í viðtali við MBL að liðið hafi fengið skrítna dóma á sig frá dómurunum sem hafi reynst liðinu erfiðir. 

,,Það er eins og þeir séu ekki alveg að fíla okkur. Danirnir fengu að halda áfram þegar þeir duttu inn í teig en það var alltaf stoppað þegar við duttum inn í teig. Við fengum ekki að klára sóknirnar okkar og það var mjög skrítið. Þetta var skrítin lína. Þeir hættu að dæma víti því Gísli var að vinna þá svo oft. Þeir létu það vinna gegn honum að hann væri að vinna menn. Ég skil það ekki alveg. Á meðan fær Gidsel að drippla, hoppa upp og skjóta og svo er dæmt. Þetta var skrítin lína,“ sagði Viktor við MBL.

Guðjón L. skrifaði færslu á Facebook síðu sína þar sem hann deildi viðtali Viktors við MBL.

,,Ég tjái mig sjaldan um gagnrýni leikmanna á dómara en Viktor sagði það sem ég hugsaði á meðan á leiknum stóð. Þarna var lögð ný lína sem þarfnast nánari kynningar ef hún á að standa,” sagði Guðjón L. Sigurðsson eftirlitsdómari, fyrrum alþjóðlegur handboltadómari og fyrrum formaður dómaranefndar.

Ísland mætir Króatíu í leik um bronsverðlaun á Evrópumótinu á morgun klukkan 14:15. Hér að neðan er hægt að hlusta á uppgjörsþátt Handkastsins eftir leikinn í gær þar sem dómgæslan í leik Íslands og Danmerkur var rædd.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top