Gunnar Valdimar Johnsen er kominn með félagaskipti í Stjörnuna frá Víking. Gunnar og Stjarnan fengu félagaskiptin í gegn þann 29. janúar. Gunnar sem er rétthent skytta og fæddur árið 1997 hefur ekkert leikið handbolta í rúmt 1 og hálft ár. Hann var síðast á mála hjá Víkingi og lék með þeim í rúm 3 ár. Þar af 1 ár í Olís deildinni. Það ár í Olís deildinni lék hann 20 leiki og skoraði í þeim 47 mörk. Gunnar er uppalinn í Stjörnunni og auk þess að hafa leikið með uppeldisfélaginu og Víking lék hann einnig á sínum tíma með Gróttu, ÍR og Akureyri handboltafélagi. Gunnari er væntanlega ætlað að hjálpa til við að auka breiddina í æfinga- og leikmannahóp Stjörnunnar en sem kunnugt er yfirgáfu Rea Barnabas og Ólafur Brim Stefánsson liðið fyrir stuttu. Auk þess hafa þónokkur meiðsli verið í liðinu á tímabilinu eins og oft hefur komið fram. Auk Gunnars hefur liðið bætt við sig Aroni Val Gunnlaugssyni á láni frá Hvíta Riddaranum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.