Einar Sverrisson orðinn löglegur með Selfossi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Einar Sverrisson er orðinn löglegur með uppeldisfélagi sínu Selfossi og gæti því leikið með liðinu í Olís-deild karla eftir áramót.

Einar lék með FH í Olís-deild karla á síðustu leiktíð eftir að hafa fallið með Selfossi úr Olís-deildinni tímabilið 2023/2024. Hann gerði skammtíma samning við FH þegar tímabilið var farið af stað í fyrra og lék með liðinu út tímabilið í fyrra og varð meðal annars deildarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð.

Handkastið heyrði í Einari Sverrissyni eftir að hafa séð að Einar hafi gert félagaskipti yfir til Selfoss á dögunum. Einar sagðist ekki hafa verið að æfa með liðinu og gerði ekki ráð fyrir því að leika með liðinu eftir áramót.

Hann vildi hinsvegar ekki útiloka neitt en hann sagði fyrr í vetur í viðtali við Handkastið að það yrði fegurð í því að ljúka ferlinum í Selfoss treyjunni. Hann sagði að pælingin með að gera félagaskipti yfir í Selfoss á þessum tímapunkti einungis vera sú að eiga þann möguleika inni að geta spilað með uppeldisfélaginu ef upp kæmi sú staða.

Hann væri sjálfur að glíma við smávægileg meiðsli og væri því ekki einu sinni leikfær um þessar mundir.

Tíminn verður að leiða það í ljós hvort Einar Sverrisson sem er fæddur árið 1992 ljúki ferlinum í Selfoss treyjunni eða hvort síðasti handboltaleikurinn á hans ferli hafi verið með FH á síðustu leiktíð.

Olís-deild karla fer aftur af stað á miðvikudaginn en Selfoss fer til Vestmannaeyja og mæta þar ÍBV í fyrsta leik Olís-deildarinnar á þessu ári klukkan 18:00 á miðvikudaginn. Umferðin lýkur síðan á fimmtudaginn með þremur leikjum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top