Segir væntanlegar breytingar 20 árum of seinar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn (Sævar Jónasson)

Snorri Steinn Guðjónsson gagnrýnir ferðaálagið á Evrópumótinu við HBOLD.dk og segir þær breytingar sem EHF hefur lofað að gera eftir Evrópumótið vera „20 árum of seint“ en fullyrðir hinsvegar að ferðaþreytan hafi ekki verið ástæðan fyrir tapi Íslands gegn Dönum á föstudaginn.

Gagnrýni á leikjadagskrána og ferðaálagið hefur verið mikið í kringum úrslitahelgi Evrópumótsins sem lýkur í dag með tveimur leikjum um gull og bronsverðlaun. Bæði Ísland og Króatíu léku tvo leiki á tveimur dögum og þurftu síðan að ferðast í dágóðan tíma á hvíldardegi sínum í aðdraganda undanúrslitanna á föstudagskvöldið. 

Aðstæður voru aðrar fyrir Danmörku og Þýskaland, sem spiluðu á mánudag og miðvikudag og sluppu við ferðadag fyrir undanúrslitin, báðar þjóðirnar unnu sína leiki í undanúrslitunum og leika til úrslita í dag klukkan 17:00.

,,Þetta er sérstakt. Þetta er ekki gott og þetta er eitthvað sem leikmennirnir hafa kvartað yfir í mörg ár. Þeir sem taka ákvarðanirnar hlusta ekki á leikmennina og taka ekki tillit til þeirra. Það er staðreynd. En það er ekki ástæðan fyrir því að við töpuðum gegn Dönum,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson.

Samkvæmt áætlunum er gert ráð fyrir að ný regla verði tekin upp frá og með næsta ári, sem þýðir að lið mega ekki hafa ferðadag á almennum frídegi.

,,Það er 20 árum of seint. Það er alveg ótrúlegt að þeir séu aðeins að uppgötva þetta núna,“ sagði Snorri Steinn að lokum.

Ísland og Króatía mætast í bronsleik Evrópumótsins klukkan 14:15 í dag. Handkastið gerir upp leikinn í uppgjörsþætti sínum síðar í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top