Elliði Snær Viðarsson (Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)
Strákarnir okkar enduðu Evrópumótið á tapi gegn Króatíu í leik um bronsverðlaun og því verður íslenska landsliðið að sætta sig sig 4.sætið á mótinu. Króatía náði snemma forskoti í leiknum og náði mest sex marka forystu í fyrri hálfleiknum. Íslenska liðið minnkaði muninn niður í tvö mörk fyrir hálfleik. Ísland náði þó aldrei að jafna metin og náðu þeir strax sex marka forystu aftur í seinni hálfleiknum. Ísland gerði þó hvað þeir gátu til að jafna metin en niðurstaðan 34-33. Markvarslan var ekki góð í leiknum eins og svo oft áður á mótinu, skotnýtingin sérstaklega í fyrri hálfleik var afar slök og þá sérstaklega úr dauðafærum. Elliði Snær Viðarsson skoraði til að mynda einungis eitt mark í leiknum úr fjórum tilraunum. Í seinni hálfleik reyndust tapaðir boltar liðinu dýrir en Ísland tapaði öllum sex boltum sínum í leiknum í seinni hálfleik. Ómar Ingi Magnússon var stórkostlegur á vítalínunni og skoraði úr öllum sínum skotum í leiknum, 12 mörk úr 12 skotum. Gísli Þorgeir Kristjánsson dró vagninn sóknarlega en færanýtingin hans hefur oft verið betri. Hann skoraði sex mörk úr tólf skotum, fiskaði fjögur víti og gaf fimm stoðsendingar. Einkunnir Íslands má sjá hér: Björgvin Páll Gústavsson - 5 Viktor Gísli Hallgrímsson - 4 Arnar Freyr Arnarsson - 5 Bjarki Már Elísson - 7 Einar Þorsteinn Ólafsson - 5 Elliði Snær Viðarsson - 3 Gísli Þorgeir Kristjánsson - 7 Haukur Þrastarson - 4 Janus Daði Smárason - 4 Orri Freyr Þorkelsson - Spilaði of lítið Óðinn Þór Ríkharðsson - 6 Ómar Ingi Magnússon - 8 Sigvaldi Björn Guðjónsson - Spilaði ekkert Viggó Kristjánsson - 5 Ýmir Örn Gíslason - 6 Þorsteinn Leó Gunnarsson - Spilaði ekkert Viðmið: 10 - Óaðfinnanleg frammistaða 9 - Frábær frammistaða 8 - Mjög góður 7 - Góður 6 - Ágætur 5 - Þokkalegur 4 - Lélegur 3 - Mjög lélegur 2 - Arfa slakur 1 - Óboðleg frammistaða

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.