
Ísland (Jonathan Nackstrand / AFP)
Einn af sérfræðingunum í EM stofunni á RÚV, Logi Geirsson segir auðvelt að rýna í tap Íslands gegn Króatíu í loka leik þjóðanna á Evrópumótinu sem Króatía vann með einu marki, 34-33 og tryggði sér þar með bronsið á mótinu. ,,Málið er að mér finnst við ekki þora að breyta. Horfum á þennan leik í dag. Afhverju náum við þessum leik eitthvað upp? Eina skiptið sem við þorðum að breyta. Mér líður eins og ég sé horfa á formúluna og við séum með Ferrari en keyrum hann eins og Fiat. Það er eins og ég horfi á þetta. Við erum með betra lið en Króatar," sagði Logi Geirsson og benti á að Ísland væri að tapa í þriðja sinn á rúmlega einu ári gegn Króatíu. ,,Við verðum að rýna í það afhverju við erum ekki að vinna þá,” sagði Logi Geirsson. Kári Kristján Kristjánsson benti á að fyrri hálfleikurinn og færanýtingin í fyrri hálfleiknum hafi drepið strákana okkar. ,,Við erum bara með tvo tapaða bolta í fyrri hálfleik og oft er sagt að maður þurfi bara að nýta færin og þá er maður inn í leiknum. Það er í rauninni stóri sannleikurinn í þessum fyrri hálfleik. Við hálf drepum okkur á fyrstu mínútunum og erum alltaf að elta. Og leið og þú ferð að klikka dauðafærum þá ómeðvitað, alveg sama hver hvað segir þá kemur vantrú á það sem þú ert að spila. Þá ferðu að leita í eitthvað annað en það sem er í rauninni að skapa þessi dauðafæri sem þú vilt. 60% skotnýting í fyrri hálfleik er vont.” Handkastið gerir upp leikinn og mótið í uppgjörsþætti sínum í kvöld sem verður aðgengilegur á öllum hlaðvarpsveitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.