
Dagur Sigurðsson (Jonathan Nackstrand / AFP)
Dagur Sigurðsson þjálfari króatíska landsliðið vann til verðlauna á sínu öðru stórmóti í röð sem þjálfari Króatíu. Í fyrra vann króatíska landsliðið til silurverðlauna á HM á heimavelli og í ár vann liðið til bronsverðlauna eftir 34-33 sigur á Íslandi í dag. Dagur var að vonum ánægður með sigurinn og leik liðsins í leiknum í dag en Króatar voru yfir allan leikinn. Mest náði liðið sex marka forystu bæði í fyrri og seinni hálfleik leiks. ,,Þetta var mjög góð frammistaða margra leikmanna. Við fórnuðum okkur fyrir þennan verðlaunapening. Þetta var mikil liðsvinna, sérstaklega þegar Ísland kom aftur inn í leikinn. Við erum mjög ánægðir, en við berum líka mikla virðingu fyrir leik Íslands," sagði Dagur í viðtali við EHF.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.