Emil Jakobsen (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
Danir eru Evrópumeistarar eftir sigur gegn Þjóðverjum 34-27 í Boxen í Herning í Danmörku. Þýskaland var yfir í tvígang í leiknum í stöðunni 4-5 og 5-6 en síðan ekki söguna meir. Danir voru 1-3 mörkum yfir mest mengis af fyrri hálfleiknum og leiddu í hálfleik 18-16. Þjóðverjar jöfnuðu metin í 19-19 í upphafi seinni hálfleiks en eftir það litu Danir aldrei við og unnu að lokum sjö marka sigur 34-27 en það var mesti munurinn á liðunum í leiknum. Danir skoruðu fimm síðustu mörk leiksins. Kevin Möller var valinn maður leiksins eftir leikinn en hann varði átta skot í leiknum. Simon Pytlick var markahæstur allra á vellinum með átta mörk. Johan Hansen og Mathias Gidsel komu næstir með sjö mörk hvor. Hjá Þjóðverjum voru þeir Johannes Golla, Juri Knorr og Marko Grgic allir með fimm mörk hver. Með sigrinum eru Danir ríkjandi heims, Evrópu- og Ólympíumeistarar önnur þjóðin í sögunni sem nær þeim áfanga en Frakkar hafa náð því einu sinni. Danir voru að vinna Evrópumeistaratitilinn í þriðja sinn í sögunni og í fyrsta skipti frá árinu 2012. Svona endaði EM:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.