Gidsel sló markamet Evrópumótsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mathias Gidsel (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Mathias Gidsel sló markamet Evrópumótsins í úrslitaleik Danmerkur og Þýskalands í dag en Mathias Gidsel sló met sem Norðmaðurinn, Sander Sagosen setti á Evrópumótinu 2020.

Mathias Gidsel gerði sér lítið fyrir og skoraði alls 68 mörk á Evrópumótinu í ár sem er þremur mörkum meira en Sander Sagosen gerði á Evrópumótinu 2020.

Þetta mót fer því í sögubækurnar fyrir Gidsel sem var auk þess valinn MVP mótsins og varð Evrópumeistari með Dönum eftir sigur á Þýskalandi í úrslitaleiknum.

Flest mörk skoruð á einu Evrópumóti:

Mathias Gidsel - 68 (2026)

Sander Sagosen 65 (2020)

Simon Pytlick - 62 (2026)

Francisco Costa - 61 (2026)

Kiril Lazarov - 61 (2012)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top