
Alfreð Gíslason þjálfari Þjóðverja þurfti að sætta sig við tap gegn Danmörku í úrslitaleik Evrópumótsins í gær í Boxen í Herning í Danmörku fyrir framan fulla stúku nánast alla á bandi Dani sem eru með sigrinum ríkjandi heims, Evrópu og Ólympíumeistarar. Danir unnu leikinn með sjö mörkum 34-27 en Danmörk skoraði fimm síðustu mörk leiksins þar sem Þjóðverjar lentu tveimur mönnum færri. Alfreð var í viðtali við RÚV eftir leikinn. ,,Við vorum tveimur mörkum undir þegar fimm mínútur voru eftir. Að tapa svo með sjö sýnir leikinn ekki alveg," sagði Alfreð sem var ósáttur með mörg mistök þýska liðsins og fannst Danir eiga sigurinn skilið. Hann segir engan vafa um það að hann hefði þegið silfrið fyrir mótið. „Við vorum í erfiðustu milliriðlum sem við höfum nokkurn tíma verið í. Við sögðum alltaf fyrir mótið að ef við kæmumst upp úr því væri það frábær árangur.“ Að lokum var Alfreð spurður út í íslenska liðið sem tapaði gegn Króatíu í leiknum um 3.sætið á mótinu. „Ég var mjög ánægður með megnið af mótinu hjá Íslandi. Mér fannst þeir frábærir á móti Dönum. Það gerðist það sama og hjá okkur, kannski. Danir hafa vissan bónus. Þeir fá aukaskref og það sem er ruðningur öðru megin er víti hinu megin. Mér fannst þetta samt frábær leikur og þeir voru vel inni í því að vinna Danina. Það var góður varnarleikur líka. Ísland er hreinlega með frábært lið," sagði Alfreð Gíslason í viðtali við RÚV eftir tapið í úrslitaleiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.