Íslenska karlalandsliðið lauk leik á evrópumótinu í gær er liðið tapaði með einu marki gegn Króatíu í leik um bronsverðlaun. Ísland var í undanúrslitum Evrópumótsins í fyrsta skipti síðan árið 2010 og því hafði landsliðið beðið eftir því að leika um verðlaun á stórmóti í 16 ár. Ísland lék alls níu leiki á mótinu, vann fimm leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði einum. Tvívegis tapaði liðið gegn Króatíu á mótinu auk þess að tapa gegn Danmörku í undanúrslitum. Handkastið gaf strákunum okkar einkunnir eftir alla leikina á mótinu og hefur nú tekið saman meðaleinkunn leikmanna á mótinu. Þar kemur í ljós að Óðinn Þór Ríkharðsson var besti leikmaður Íslands á mótinu með hæstu meðaleinkunnina. Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki langt á eftir eða 0,5. Markverðir íslenska landsliðsins náðu sér ekki á strik í mótinu og eru Björgvin Páll Gústavsson og Viktor Gísli Hallgrímsson neðarlega á lista yfir einkunnir íslensku leikmannanna. Meðaltal einkunna á mótinu: *Hafa skal í huga að sumir leikmenn fengu einkunnir eftir níu leiki og aðrir eftir færri leiki. Uppgjörsþáttur Handkastsins eftir EM:
Óðinn Þór Ríkharðsson - 8,3
Gísli Þorgeir Kristjánsson - 7,8
Ómar Ingi Magnússon - 7,3
Orri Freyr Þorkelsson - 7,1
Janus Daði Smárason - 6,7
Elvar Örn Jónsson 6,6 * Spilaði bara þrjá leiki
Viggó Kristjánsson - 6,6
Einar Þorsteinn Ólafsson - 6,4
Haukur Þrastarson - 6,4
Bjarki Már Elísson - 6,4
Elliði Snær Viðarsson - 6,2
Ýmir Örn Gíslason - 6
Viktor Gísli Hallgrímsson - 5,5
Arnar Freyr Arnarsson - 5,1
Björgvin Páll Gústavsson - 3,6
Andri Már Rúnarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson, Þorsteinn Leó Gunnarsson og Teitur Örn Einarsson spiluðu of lítið á mótinu til að fá einkunn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.