Sagður vera á förum frá Melsungen
Johan Nilsson/TT / AFP

Ungverski markvörðurinn, Kristóf Palasics er á förum frá þýska félaginu, Melsungen eftir einungis eitt tímabil með félaginu. Það er RThandball sem greinir frá.

Er Palasics orðaður við ungverska stórliðið Pick Szeged og sagður ganga í raðir félagsins næsta sumar. Palasics var samningsbundinn ONE Veszprém helsta keppinaut Pick Szeged í Ungverjalandi til ársins 2025 en hann gekk í raðir Melsungen síðasta sumars.

Hann hafði hinsvegar verið á faraldsfæti síðustu ár á láni frá Veszprém en hann lék til að mynda með Benfica á síðustu leiktíð, Logrono La Rioja á Spáni þar á undan og með NEKA í Ungverjalandi tímabilið 2021-2023.

Palasics var í eldlínunni með Ungverjum á Evrópumótinu í janúar en hann er fæddur árið 2002.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top