19 þjóðir tryggt sér þátttökurétt á HM 2027
Andreas Hillergren/TT / TT NEWS AGENCY / AFP)

Alls hafa 19 þjóðir af 32 tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Það eru því einungis 13 laus sæti á heimsmeistaramótið en dregið var í umspilsleiki fyrir Evrópuþjóðirnar um síðustu helgi.

Þrettán sæti eru enn laus. Tíu lið frá Evrópu eiga enn eftir að bætast við. Eitt sæti rennur til Norður-Ameríku og Karíbahafsins. Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur síðan tvö "Wild card" til að velja inn á mótið.

Sex efstu liðin á Evrópumótinu sem lauk um síðustu helgi tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu. Þjóðverjar sem gestgjafar, Danir sem Evrópumeistarar og síðan voru fjögur önnur laus sæti í gegnum Evrópukeppnina. Þar sem bæði Danmörk og Þýskaland voru meðal fjögurra efstu þjóða á Evrópumótinu fengu þjóðirnar sem enduðu í 3.-6. sæti farseðil á heimsmeistaramótið.

Dregið verður í riðla heimsmeistaramótsins 10. júní á Hofbräuhaus í München. Íslenskir stuðningsmenn á Evrópumótinu í Þýskalandi 2024 muna eflaust eftir stemningunni á Hofbräuhaus í München.

Leikið verður í sex borgum á heimsmeistaramótinu, München, Kiel, Hannover, Stuttgart, Magdeburg og Köln en 8-liða úrslit, undanúrslit og leikirnir um sæti fer fram í Köln síðustu vikuna í janúar.

Eftirtaldar þjóðir hafa tryggt sér farseðla á HM.
Evrópa: Þýskaland, Danmörk, Króatía, Ísland, Portúgal, Svíþjóð.
Afríka: Egyptaland, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Alsír.
Asía: Barein, Katar, Kúveit, Japan.
Suður- og mið Ameríka: Argentína, Brasilía, Chile, Úrúgvæ.

Dregið var í umspil HM fyrir Evrópu um síðustu helgi:

Tékkland – Frakkland
Sviss – Ítalía
Úkraína eða Slóvakía – Norður-Makedónía
Bosnía eða Kósovó – Færeyjar
Austurríki – Pólland eða Lettland
Spánn – Georgía eða Ísrael
Grikkland eða Belgía – Holland
Noregur – Tyrkland eða Rúmenía
Finnland eða Svartfjallaland – Slóvenía
Serbía eða Litáen – Ungverjaland

Fyrri umferð umspilsins verður 13. og 14. maí og seinni leikirnir fara fram 16. og 17. maí.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top