Orfeus - Víðir í Garði (Víðir)
Greint frá því í morgun á Handkastinu, fyrst allra miðla að HK hafi fengið til sín tvo leikmenn á láni fyrir lokaátökin í Olís-deild karla. Um er að ræða markvörðinn, Patrek Guðna Þorbergsson sem kemur á láni frá Þór en Patrekur er uppalinn í HK en gekk í raðir Þórs fyrir tímabilið. Þá fékk HK Orfeus Andreou á láni frá 2.deildarliði Víði í Garð en Orfeus Andreou er örvhentur grískur leikmaður sem getur bæði leikið sem hægra horn og hægri skytta. Handkastið heyrði í Halldóri Jóhanni Sigfússyni þjálfara HK og spurði hann út í ástæðuna fyrir því að HK hafi fengið þessa tvo leikmenn á láni á þessum tímapunkti. ,,Patti óskaði eftir því að koma heim aftur eftir hálft ár hjá Þór og við vildum að sjálfsögðu fá uppalinn strák til baka og hann kemur reynslunni ríkari eftir veruna á Akureyri," sagði Halldór en HK hefur nú fjóra markverði í sínum leikmannahópi því fyrir voru þeir Róbert Örn Karlsson, Brynjar Vignir Sigurjónsson og Jovan Kukobat. ,,Orfeus kemur til með að styrkja hægri vænginn en Leó Snær og Ágúst Guðmunds. eru einu örvhentu leikmennirnir okkar í tveim stöðum og honum er ætlað að styðja við þá og styrkja hópinn. Eftir tvær æfingar og æfingarleik þá vildum við fá hann enda hefur hann sýnt góða spretti og verið mjög jákvæður og flottur fyrir framhaldinu," sagði Halldór Stefán um Grikkjann. HK fær FH í heimsókn í Kórinn annað kvöld þegar Olís-deild karla fer aftur af stað eftir langa pásu. HK er í 9.sæti deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og Stjarnan sem er í 8.sætinu. FH er hinsvegar í 4.sæti deildarinnar en HK van fyrri leik liðanna fyrir áramót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.