
Einar Bragi Aðalsteinsson (Raggi Óla)
Rétt eins og á Íslandi er boltinn farinn að rúlla aftur eftir EM pásuna en fyrstu leikirnir í Noregi og Svíþjóð voru spilaðir í kvöld. Í Noregi mættu meistararnir í Kolstad liði Follo en mikil ólga hefur verið í kringum Kolstad vegna fjárhagsvandræða og vantaði marga lykilmenn í Kolstad eins og Andreas Palicka og Simen Lyse sem dæmi. Liðið gerði jafntefli í kvöld, 29-29 og Kolstad því búnir að jafna Elverum að stigum en Elverum eiga þó leik til góða. Sigvaldi Björn Guðjónsson er ennþá leikmaður Kolstad og hann skoraði eitt mark úr einu skoti í kvöld, rétt eins og Benedikt Gunnar Óskarsson sem gaf einnig tvær stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson sat sem fastast á varamannabekknum. Kvennalið Kristianstad lenti í kröppum dans gegn Önnereds í kvöld en liðið tapaði með sjö mörkum, 31-24 á útivelli. Berta Rut Harðardóttir átti fínan leik í liði gestanna en hún skoraði fjögur mörk úr sex skotum og bætti við tveimur stoðsendingum og fékk eina brottvísun að auki. Karlalið Kristianstad vann flottan útisigur á Sävehof í Íslendingaslag, 25-28. Birgir Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir heimamenn á meðan Einar Bragi Aðalsteinsson átti erfitt uppdráttar með tvö mörk úr níu skotum og gaf tvær stoðsendingar. Það var tvíhöfði hjá Önnereds í kvöld en karlaliðið tók á móti Karlskrona og unnu öruggan sigur, 35-27. Arnór Viðarsson var í liði gestanna og hann skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og gaf eina stoðsendingu. Að lokum töpuðu Amo á heimavelli fyrir OV Helsingborg, 29-32 þar sem Arnar Birkir Hálfdánsson strögglaði með færa nýtinguna en hann skoraði þrjú mörk úr tíu skotum en var duglegur að finna liðsfélagana og gaf sex stoðsendingar og fékk einnig eina brottvísun. Úrslit kvöldsins: Follo 29-29 Kolstad Önnereds 31-24 Kristianstad Sävehof 25-28 Kristianstad Önnereds 35-27 Karlskrona Amo 29-32 Helsingborg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.