Bjarni Fritzson (Sævar Jónasson)
ÍR tapaði á heimavelli í kvöld með sex mörkum gegn KA 31-37 í fyrsta leik liðanna eftir langa jóla- og EM pásu en leikurinn var liður í 16.umferð Olís-deildar karla. Bjarni Fritzson virtist ekki ánægður með leik sinna manna og sagðist vera svekktur með að tapa þessum leik. KA leiddi í hálfleik með fimm mörkum 18-13. ,,Við erum með svo marga tæknifeila í keyrslunni og svo förum við illa með yfirtöluna. Mér fannst við gera aula mistök þar," sagði Bjarni í viðtali við Handkastið eftir leik. ,,Mér leið vel komandi inn í þennan leik en það var eitthvað að klikka og við vorum eitthvað illa stilltir. Við erum að gera of mikið af aula mistökum og við vorum ekki nægilega góðir, ég þarf að skoða þetta betur," sagði Bjarni sem var þungur á brún og greinilega voru hlutirnir ekki að spilast eins og hann gerði ráð fyrir. ÍR er áfram á botni Olís-deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir en liðið mætir HK strax á laugardaginn í næstu umferð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.