Spenntur að spila fyrsta heimaleikinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ágúst Elí Björgvinsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Ágúst Elí Björgvinsson spilaði í gærkvöldi sinn fyrsta leik með KA í Olís-deild karla en hann gekk í raðir félagsins fyrir áramót. KA vann ÍR í gær 37-31 í Skógarselinu en Ágúst Elí var skráður með átta varða bolta á HB Statz í leiknum.

Ágúst Elí var í viðtali við Handkastið eftir leik sem hægt er að sjá hér að neðan.

,,Það er fínt að vera búinn að vinna fyrsta leikinn gegn duglegu ,hörðu og efnilegu ÍR liði. Mér fannst smá byrjendabragur á þessu, við vorum að tapa boltanum og vorum inn á milli að spila lélegar varnir en mér fannst við vinna okkur í gegnum þann kafla í leiknum og skila ágætis úrslitum,” sagði Ágúst Elí.

,,Ég er mjög spenntur og ég er mjög spenntur að spila fyrsta heimaleikinn á sunnudaginn," sagði Ágúst Elí en KA fær Fram í heimsókn í 17.umferð Olís-deildarinnar á sunnudaginn næstkomandi klukkan 17:00.

KA er í 5.sæti deildarinnar eftir sigurinn með 20 stig, stigi á eftir FH sem vann einnig sinn leik í gær gegn HK í Kórnum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top