Dagur Gautason (KA)
Biðin eftir endurkomu Dags Gautasonar í KA-treyjunni tafðist um ókominn tíma eftir að hann varð fyrir því að misstíga sig illa á æfingu KA-liðsins á mánudaginn. Sem varð þess valdandi að Dagur gat ekki leikið með KA í sigri liðsins gegn ÍR í 16.umferð Olís-deildar karla í vikunni. ,,Það er ekki alveg ljóst að svo stöddu hversu lengi ég verð frá,” sagði Dagur Gautason í samtali við Handkastið aðspurður hversu lengi hann verði frá keppni. KA fær Fram í heimsókn í 17.umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. ,,Sjúkraþjálfarinn okkar sagði að leikurinn á sunnudaginn væri alveg inn í myndinni en það fer bara eftir því hvernig batinn verður næstu daga. Það gæti vel verið að ég verði eitthvað lengur frá. Ég ætla að reyna mitt besta til að ná þeim leik en það gæti farið að ég missi af honum líka,” sagði Dagur. KA fær Fram í heimsókn í 17.umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn klukkan 17:00 en sá leikur er lokaleikur 17.umferðarinnar sem hefst á laugardaginn með leik ÍR og HK og lýkur svo á sunnudag með fimm leikjum. KA er í 5.sæti Olís-deildarinnar stigi á eftir FH sem er í 4.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.