Færist heimavöllur danska landsliðsins í höfuðborgina?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Danmörk (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Danmörk varð um síðustu helgi Evrópumeistarar í fyrsta sinn í 14 ár eftir sigur á Þýskalandi í úrslitaleik Evrópumótsins sem fram fór í Boxen höllinni í Herning í Danmörku.

Boxen höllin hefur verið heimavöllur danska handboltalandsliðsins síðustu ár og hefur danska liðið bæði leikið æfingaleiki og leiki á stórmótum í Boxen undanfarin ár. Nú er hinsvegar uppi umræðuna um að heimavöllur landsliðsins gæti færst yfir í höfuðborgina, Kaupmannahöfn. Við litla hrifningu.

Um er að ræða pólítískt mál innan Danmörku en þegar landsliðið var nýlega fagnað í ráðhúsi Kaupmannahafnar eftir sigur sinn á Evrópmótinu, lét Sisse Marie Welling, borgarstjóri Kaupmannahafnar, í ljós í ræðu sinni að hún vildi gjarnan sjá danska landsliðið spila sína heimaleiki í Royal Arena í Kaupmannahöfn.

Á Facebook-síðunni "Håndboldsnak" hefur komið upp umræðuna um málið og sett var á laggirnar skoðunarkönnun um málið. Tæplega 90% kjósenda vilja að heimavöllur Danmörkur verði áfram Boxen í Herning. Landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen hefur ítrekað lýst því yfir að hann sjái Jyske Bank Boxen sem heimavöll danska karlalandsliðsins. Stuðningsmenn danska landsliðsins virðast vera sammála Nikolaj í þeim efnum.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessi mál þróast og hverjir munu taka lokaákvörðun um það hvar danska landsliðið mun leika heimaleiki sína. Það er Hbold.dk sem greinir frá.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top