Við viljum koma okkar mönnum á góða staði
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigursteinn Arndal (Sævar Jónasson)

Sigursteinn Arndal þjálfari FH segist vera stoltur að Garðar Ingi Sindrason leikmaður FH hafi samið við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach á dögunum en Garðar Ingi gengur í raðir Gummersbach næsta sumar.

Þjálfari Gummersbach er Guðjón Valur Sigurðsson og með liðinu leika landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson.

Sigursteinn Arndal sagði í viðtali við Handkastið eftir sigur FH gegn HK í gær að það hafi ekki komið neitt annað til greina en að Garðar Ingi myndi klára tímabilið með FH áður en hann færi til Gummersbach.

,,Við erum stoltir af því að koma Garðari á jafn flottan stað og hjá jafn öflugum þjálfara og Guðjón Valur. Þetta viljum við gera með okkar menn og koma þeim á góða staði. Við erum stoltir af því en af því sögðu þá á Garðar Ingi eftir einhverja 4-5 mánuði hjá okkur áður en hann fer út og hann þarf að leggja sig allan fram í það verkefni. Ég veit að hann gerir það. Hann þarf að halda áfram að stækka.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top