Óvissa um hvenær Sigtryggur snýr aftur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigtryggur Daði Rúnarsson (Sævar Jónasson)

Sigtryggur Daði Rúnarsson leikmaður ÍBV hefur ekki leikið með liðinu í fyrstu tveimur leikjum liðsins eftir áramót í Olís-deild karla.

Sigtryggur Daði glímir við frekar sjaldgæf meiðsli og ríkir mikil óvissa um það hvort og hvenær Sigtryggur getur snúið aftur á völlinn.

,,Ég get ekki komið með neitt mjög nákvæmt þar sem þetta er í smá óvissu. Það uppgvötaðist núna um jólin að lífbeinið hjá mér væri illa farið eftir ofálag og það sást að það var kominn beinbjúgur eða mögulega lítið brot í það sem var að hamla mér í hreyfingum. Það eina sem virkar greinilega gegn þessu er bara hvíld í ákveðinn tíma og meta síðan stöðuna eftir það. Þannig ég er í því ferli núna," sagði Sigtryggur sem vonast til að hvíldin hjálpi til með bata á þessum meiðslum.

,,Þetta er víst það sjaldgæft að ég hef sjálfur fengið mismunandi og misnákvæm svör," sagði Sigtryggur í samtali við Handkastið.

Eyjamenn hafa byrjað seinni hluta Olís-deildarinnar vel en liðið hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í Olís-deildinni eftir áramót. Fyrst gegn Selfossi á heimavelli og nú síðast gegn Haukum á Ásvöllum. ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn annað kvöld í 18.umferð Olís-deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top