Vonast til að Jón Ásgeir geti leikið næsta leik
Sævar Jónasson)

Sverrir Eyjólfsson aðstoðarþjálfari Stjörnunnar sagði í viðtali við Handkastið eftir fimm marka tap liðsins gegn Þór í 16.umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið vonast eftir því að Jón Ásgeir Eyjólfsson línumaður liðsins geti leikið með liðinu strax í næsta leik.

Stjarnan mætir hinum nýliðunum í Olís-deildinni, Selfossi á heimavelli í 17.umferð á sunnudaginn í mikilvægum leik fyrir bæði lið en aðeins einu stigi munar á liðunum þrátt fyrir að Stjarnan sé í 8.sæti og Selfoss í því 11.

,,Vonandi verður hann kominn inn í næsta leik. Hann er aðeins byrjaður að hlaupa og byrjaður að fara í smá kontakt. Vonandi er stutt í hann,” sagði Sverrir Eyjólfsson aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í viðtali við Handkastið eftir fimm marka tap liðsins gegn Þór á fimmtudagskvöldið.

Jón Ásgeir meiddist á æfingu Stjörnuliðsins fyrir áramót og lék ekki með liðinu í síðustu leikjum liðsins í desember.

Hann hafði verið algjör lykilmaður í liði Stjörnunnar bæði varnar- og sóknarlega og munar mikið um fyrir Stjörnuliðið að fá hann til baka.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top