Tímabilið er undir hjá Stjörnunni á sunnudaginn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hrannar Guðmundsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Nýliðar Þórs unnu sinn fyrsta útileik á tímabilinu er liðið mætti Stjörnunni í 16.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Þór hafði mikla yfirburði í leiknum og eftir að hafa komist mest níu mörkum yfir í hálfleik unnu þeir að lokum fimm marka sigur 29-24 en Stjarnan minnkaði muninn mest í fjögur mörk í seinni hálfleik.

Fyrsti sigur Þórs í Olís-deildinni frá því í október en Stymmi klippari hafði talað um það fyrir áramót að hann hefði virkilegar áhyggjur af Þórsliðinu.

,,Síðan fá þeir þessa guðsgjöf að mæta Stjörnunni á þessum tímpunkti. Ég kíkti á skýrsluna fyrir leik og ég var í yfirvinnu á Google því af 16 nöfnum á skýrslunni voru svona átta nöfn sem ég hafði ekki heyrt um áður," sagði Stymmi klippari.

Kristinn Björgúlfsson var gestur í Handkastinu og hann tók undir það. ,,Ég var einmitt mikið að horfa á töfluna upp á vegg að reyna átta mig á því hver var hvar. Þetta lýsir því í hversu miklum vandræðum Stjarnan er í, með leikmannahóp sinn."

,,Það verður ekkert meira úr þessu tímabili hjá Stjörnunni, Stjarnan fer sennilega ekki í úrslitakeppnina og ég sé þá ekki falla beint. Við vitum það betur um helgina hvort 12.sætið verði eyrnamerkt einu liði," sagði Stymmi klippari en Kristinn benti reyndar á að Stjarnan gæti enn fallið miðað við stöðu þeirra í deildinni. Hvort sem það væri þá í gegnum umspilið eða lenda í neðsta sæti deildarinnar.

,,Ef ég fer í kristalkúluna mína þá er tímabilið undir hjá Stjörnunni á sunnudaginn. Þeir fá Selfoss á heimavelli og síðan eru þetta Haukar, Afturelding, KA, ÍR og Fram. Ef þeir vinna Selfoss á sunnudaginn þá hafa þeir bjargað sér. Ég sé ekki Selfoss ná þeim eftir það. Það er allt undir í Heklu-höllinni á sunnudaginn. Ef Stjarnan tapar á sunnudaginn er Stjarnan komið fyrir ofan þá í deildinni," sagði Stymmi að lokum.

Stjarnan fær Selfoss í heimsókn á sunnudaginn klukkan 16:30 í Heklu-höllinni. Einu stigi munar á liðunum en Stjarnan er með 10 stig en Selfoss er í 11.sætinu með 9 stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top