Róbert frá vegna meiðsla
Skapti Hallgrímsson / Akureyri.net

Róbert Sigurðarson varnar- og línumaður ÍBV í Olís-deild karla sem framlengdi samningi sínum við félagið á dögunum er að glíma við meiðsli og var ekki með ÍBV liðinu í öruggum sigri liðsins gegn Selfossi í fyrsta leik liðanna á nýju ári í Olís-deildinni.

Róbert sagði í samtali við Handkastið að hann væri að glíma við bólgur í hné en segir að þetta líti betur út með hverjum deginum og það styttist í að hann komi aftur inn á völlinn.

Aðspurður hvenær Eyjamenn gætu gert ráð fyrir að sjá hann aftur á vellinum sagði Róbert að það væri erfitt að segja til um það. ,,Við þurfum að bíða og sjá, hvernig gengur á æfingum næstu daga,” sagði Róbert í samtali við Handkastið.

Róbert framlengdi samningi sínum við ÍBV til sumarsins 2028 en kærasta hans, Andrea Jacobsen gengur í raðir kvennaliðs ÍBV næsta sumar frá þýska liðinu Blomberg-Lippe. Handkastið greindi frá því fyrir helgi að Hinrik Hugi Heiðarsson, annar línumaður ÍBV væri á leið í aðgerð og myndi að öllum líkindum ekkert spila meira með ÍBV á tímabilinu.

ÍBV heimsækir Hauka heim í 17.umferð Olís-deildarinnar í dag klukkan 16:00 en fimm leikir fara fram í Olís-deildinni í dag.

Klukkan 15:30 hefst fyrsti leikur dagsins þegar Afturelding og Valur mætast.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top