Dagur Árni sá mikilvægasti – Tveir í liði mótsins
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Dag­ur Árni Heim­is­son, fyr­irliði ís­lenska U19 ára landsliðs karla, var val­inn mikilvægasti leikmaður mótsins (MVP) á Opna Evr­ópu­mót­inu í hand­bolta sem lauk á föstudaginn. Íslenska landsliðið tapaði úrslitaleiknum gegn sterku liði Spánar með minnsta mun, 31-30.

Það er hefð á alþjóðlegum mótum að mikilvægasti leikmaður mótsins sé ekki valinn í úrvalslið mótsins. Það var engin undantekning gerð að þessu sinni. Dagur Árni var því ekki í liði mótsins en Ísland átti tvo fulltrúa í liði mótsins.

Það voru þeir Jens Sigurðarson, markvörður úr Val og Bessi Teitsson, vinstri hornamaður úr Gróttu.

U19 ára landsliðið fer á HM í Egyptalandi í ágúst. Það verður spennandi að sjá liðið leika þar á stærsta sviðinu undir stjórn Heimis Ríkharðssonar þjálfara U19 ára landsliðsins.

Lið mótsins:

All-Star holdet ved European Open 2025:

Markmaður: Jens Sigurðarson (Ísland)

Vinstra horn: Bessi Teitsson (Ísland)

Vinstri skytta: Josip Tomic (Króatía)

Miðjumaður: Quim Rocas Perez (Spánn)

Línumaður: Guido Bayo Giraudo (Spánn)

Hægri skytta: Max Pedersen (Svíþjóð)

Hægra horn: Jakub Kalata (Póland)

Markahæstur: Kristofer Liedemann (Eistland) – 43 mörk

Besti varnarmaðurinn: Oriol San Felipe Vilarrasa (Spánn)

Mikilvægasti leikmaðurinn: Dagur Árni Heimisson (Ísland)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top