Ísak Gústafsson (Baldur Þorgilsson)
Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í dönsku deildinni í kvöld en Skanderborg unnu góðan útisigur á Mors-Thy, 27-33 en gestirnir voru án Kristjáns Arnar Kristjánssonar sem er frá vegna meiðsla. Í hinum leik kvöldsins gerðu Ringsted jafntefli við lið Bjerringbro-Silkeborg einnig á útivelli, lokatölur 27-27. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði tvö mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu á meðan Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og gaf þrjár stoðsendingar. Skanderborg sitja í öðru sæti deildarinnar en þó langt á eftir efsta liðinu, Álaborg sem hafa unnið alla átján leiki sína. Ringsted eru í harðri fallbaráttu en þeir eru í tólfta sæti með 15 stig en þrjú lið fyrir ofan liðið eru með sama stigafjölda. Úrslit kvöldsins: Mors-Thy 27-33 Skanderborg Bjerringbro-Silkeborg 27-27 Ringsted

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.