Janus Daði ekki með þegar Pick Szeged slapp með skrekkinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Janus Daði Smárason (Javier Borrego / Spain DPPI / DPPI via AFP)

Pick Szeged slapp með skrekkinn í ungversku úrvalsdeildinni í dag er liðið van PLER með einu marki, 25-26 á útivelli í dag.

Janus Daði Smárason var ekki í leikmannahópi Pick Szeged í leiknum í dag en tæplega vika er síðan Janus Daði lék með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu. Lazar Kukic var markahæstur í liði Pick Szeged með fimm mörk.

Mario Sostaric sem vann til brons verðlauna með króatíska landsliðinu á Evrópumótinu skoraði fjögur mörk og Spánverjinn, Imanol Garciandia skoraði einnig fjögur mörk fyrir Pick Szeged.

Pick Szeged var 11-14 yfir í hálfleik en liðið var yfir allan seinni hálfleikinn og náði mest fimm marka forystu. PLER minnkuðu muninn í eitt mark undir lokin en lengra komust þeir ekki. Pick Szeged er í 2.sæti deildarinnar, stigi á eftir Veszprém sem hafa þó leikið tveimur leikjum færri en Pick Szeged.

PLER er í 8.sæti deildarinnar, fimmtán stigum á eftir Pick Szeged en þegar liðin mættust í fyrri umferðinni í september vann Pick Szeged tólf marka sigur, 44-32.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top