Aron Rafn frá vegna höfuðhöggs
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Aron Rafn Eðvarðsson (Sævar Jónasson)

Markvörður Hauka, Aron Rafn Eðvarðsson hefur ekki verið í leikmannahópi Hauka í fyrstu tveimur leikjum liðsins eftir áramót. Haukar fengu Grétar Ara Guðjónsson til sín frá AEK í Grikklandi í janúar og hefur hann og Magnús Gunnar Karlsson myndað markvarðarpar Hauka í fyrstu tveimur leikjum liðsins eftir áramót.

Samkvæmt heimildum Handkastsins fékk Aron Rafn skot í höfuðið á æfingu liðins í aðdraganda leiksins gegn Vals sem hefur haldið honum frá vellinum hingað til.

Aron Rafn á langa sögu varðandi höfuðmeiðsli sem héldu honum frá vellinum í langan tíma en hann sneri aftur á völlinn í febrúar 2023 eftir árs fjarveru.

Samkvæmt því sem Handkastið hefur heyrt, eru Haukar að gera sér vonir um að Aron verði orðinn klár fyrir bikarúrslitahelgina í lok febrúar en Haukar mæta þar grönnum sínum í FH í undanúrslitum Powerade-bikarsins.

Haukar töpuðu um helgina gegn ÍBV á heimavelli með einu marki en unnu Val á útivelli í leiknum þar á undan. Haukar fara í Garðabæinn í næstu umferð og mæta þar Stjörnunni á föstudagskvöldið klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top